Dominic Calvert-Lewin, leikmaður Everton, viðurkennir að brottför Carlo Ancelotti hafi komið verulega á óvart.
Ancelotti ákvað nýlega að yfirgefa lið Everton og hefur tekið við stjórnartaumunum hjá Real Madrid á ný.
Það bjóst enginn við að Ítalinn væri á förum miðað við orð enska landsliðsmannsins.
„Þetta var mjög óvænt. Ég held að enginn hafi búist við þessui. Svona er fótboltinn og þú verður bara að halda áfram," sagði Calvert-Lewin.
„Ég hef ekki rætt við neinn hjá félaginu nema stráka hjá Englandi en okkur leið öllum eins."
„Þetta var mjög, mjög óvænt en þú verður bara að taka þessu í fótboltanum."
Athugasemdir