Varnarmaðurinn Fabian Balbuena mun yfirgefa lið West Ham þegar samningi hans lýkur þann 30. júní.
Þetta staðfesti enska félagið í gær en enska félagið ákvað að framlengja samning leikmannsins ekki.
Balbuena hefur spilað með West Ham undanfarin þrjú ár og skoraði þrjú mörk í 62 leikjum.
Paragvæinn er aðeins þrítugur að aldri en hann spilaði í Brasilíu í tvö ár fyrir dvölina á Englandi.
West Ham samdi þá endanlega við Craig Dawson sem var í láni hjá félaginu frá Watford.
Athugasemdir