Portúgal og Þýskaland mætast í úrslitaleik Evrópumótsins fyrir leikmenn skipaða 21 árs og yngri í kvöld en leikurinn fer fram á
Stožice-leikvanginum í Ljubljana í Slóveníu og hefst klukkan 19:00.
Stožice-leikvanginum í Ljubljana í Slóveníu og hefst klukkan 19:00.
Það eru tvær breytingar gerðar á portúgalska liðinu í kvöld en Gedson Fernandes og Rafael Leao detta úr liðinu og inn koma þeir Florentino Luis og Tiago Tomas.
Það er hins vegar engin breyting á liði Þýskalands frá síðasta leik. Florian Wirtz, Lukas Nmecha og Arne Meier eru allir á sínum stað.
Portúgal: Diogo Costa - Dalot, Leite, Queirós, Abdu Conté - Vitinha, Florentino, Daniel Bragança - Fábio Vieira - Dany Mota, Tiago Tomás.
Þýskaland: Dahmen - Baku, Pieper, Schlotterbeck, Raum - Dorsch, Maier, Salih Özcan - Wirtz, Nmecha, Berisha.
Athugasemdir