Kevin De Bruyne, leikmaður Manchester City á Englandi, var valinn leikmaður ársins af leikmönnum ensku úrvalsdeildarinnar en greint var frá valinu í kvöld. Phil Foden er besti ungi leikmaðurinn.
De Bruyne hefur verið með bestu leikmönnum deildarinnar síðustu ár en þetta er annað árið í röð sem hann vinnur þessi verðlaun.
Hann skoraði sex mörk og lagði upp tólf á þessu tímabili er City vann deildina.
Phil Foden, samherji hans hjá City, var valinn besti ungi leikmaðurinn en hann skoraði fimm mörk og lagði upp níu.
Í kvennaflokki var Fran Kirby, leikmaður Chelsea, valin best en Chelsea vann deildina og komst í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á tímabilinu og þá var Lauren Hemp, leikmaður Manchester City, valin besti ungi leikmaðurinn.
🏆 Kevin De Bruyne
— Sky Sports News (@SkySportsNews) June 6, 2021
🏆 Fran Kirby
🏆 Phil Foden
🏆 Lauren Hemp
The #PFA Player and Young Player of the Year winners have been revealed 👇
Athugasemdir