Jóna þjálfari Hauka kom í viðtal eftir 0-1 á móti HK í 5. umferð Lengjudeildar kvenna.
Jóna var að vonum ekki sátt með úrslit leiksins.
"Tilfiningin er bara drullufúl, við áttum að vinna þenna leik, við vorum að spila alveg nógu vel til þess og þær fá bara gefins víti, ég bara skil ekki enþá hvað dómarinn var að dæma á og ég held að hann þurfi að skoða þetta eitthvað, hún fær þarna færi og klárar færið og svo dæmir hann bara allt í einu víti, ég bara get ekki skilið þetta"

Lestu um leikinn: Haukar 0 - 1 HK
Jónu fannst haukastelpur spila vel og skapa sér nóg af færum til þess að vinna leikinn.
"Eins og í fyrri hálfleik fengum við aragrúa af færum og boltinn fór ekki inn og eins í seinni hálfleik, við höldum áfram að þrýsta en erum ekki að skora og það er bara dýrt í svona leik."
Viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan.
Athugasemdir