Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 06. júní 2021 08:30
Victor Pálsson
Pogba: Kante á Ballon d'Or skilið
Mynd: EPA
N'Golo Kante á skilið að vinna Ballon d'Or verðlaunin að sögn landa hans, Paul Pogba.

Kante er talinn vera einn besti miðjumaður heims en hann vann Meistaradeildina með Chelsea á þessu tímabili.

Cristiano Ronaldo og Lionel Messi eru vanir því að vinna til þessara verðlauna sem eru afhent besta leikmanni heims á hverju ári.

Pogba bendir þó á að þessir leikmenn hafi ekki komist lengst í Meistaradeildinni á þessu ári.

„Það var enginn Cristiano eða Messi í undanúrslitunum svo það var gott að sjá góða frammistöðu frá miðjumönnum og varnarmönnum," sagði Pogba.

„Ég sagði fyrir löngu að ef Chelsea myndi sigra þá myndi það passa að hann myndi vinna Ballon d'Or. Það væri vel verðskuldað líka."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner