Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   sun 06. júní 2021 11:20
Aksentije Milisic
PSG að hafa betur í baráttunni um Wijnaldum
Mynd: Getty Images
Georgino Wijnaldum er mjög nálægt því að ganga til liðs við PSG en frönsku risarnir virðast vera hafa betur í baráttunni gegn Barcelona.

Hollenski miðjumaðurinn yfirgaf Liverpool á frjálsri sölu í þessum mánuði og lengi vel leit út fyrir það að hann væri á leið til Barcelona.

PSG hefur hins vegar boðið Wijnaldum miklu betri samning og nú virðist allt stefna í það að leikmaðurinn fari til Parísar og skrifi undir þriggja ára samning.

Nokkur stórlið höfðu áhuga á Wijnaldum, þar á meðal Bayern Munchen. Talið var að hann væri búinn að ná samkomulagi við Barcelona en þá steig PSG inn.

Wijnaldum verður fyrirliði Hollands á EM sem hefst eftir nokkra daga en hann á 74 leiki að baki fyrir landsliðið.
Athugasemdir
banner