Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 06. júní 2021 16:35
Aksentije Milisic
U19 lið Íslands gerði jafntefli við Færeyjar
Orri Steinn skoraði.
Orri Steinn skoraði.
Mynd: Hulda Margrét
Ísland og Færeyjar áttust við í æfingaleik í dag en spilað var í Svangaskarði í Færeyjum. Leiknum lauk með 2-2 jafntefli.

Orri Steinn Óskarsson, sem spilar í Danmörku, gerði fyrra mark Íslands. Það var svo Hilmir Rafn Mikaelson, leikmaður Fjölnis, sem skoraði síðara mark Íslands en það kom úr vítaspyrnu.

Byrjunarlið Íslands í leiknum:
12. Ólafur Örn Ásgeirsson (M)
2. Jakob Franz Pálsson
5. Þorsteinn Aron Antonsson
6. Óli Valur Ómarsson
8. Kristófer Jónsson
9. Orri Steinn Óskarsson
10. Danijel Dejan Djuric
14. Dagur Þór Hafþórsson
15. Jón Vignir Pétursson
17. Hilmar Rafn Mikaelsson
20. Andi Hoti

Ólafur Ingi Skúlason er þjálfari U19 ára landsliðs Íslands.
Athugasemdir
banner
banner