Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 06. júlí 2018 10:08
Magnús Már Einarsson
Fyrirliði Svía eignaðist dóttur - Missti af fæðingunni
Andreas Granqvist.
Andreas Granqvist.
Mynd: Getty Images
Andreas Granqvist, fyrirliði Svía, varð faðir í annað skipti í nótt þegar eiginkona hans Sofie fæddi dóttur.

Hinn 33 ára gamli Granqvist missti sjálfur af fæðingunni þar sem hann er í Rússlandi að undirbúa sig fyrir leik Englands og Svíþjóðar í 8-liða úrslitum HM á morgun.

„Svo ánægður og stoltur af konunni minni. Báðum heilsast vel," sagði Granqvist þegar hann birti mynd af dóttur sinni á Instagram.

Granqvist vissi fyrir HM að hann gæti misst af fæðingunni.

„Eiginkona mín er mjög sterk persóna og við vissum stöðuna áður en ég kom hingað," sagði Granqvist í vikunni.

Athugasemdir
banner
banner