Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands, er ánægður með Dele Alli. Alli byrjaði fyrsta leik liðsins en missti svo af leikjunum gegn Panama og Belgíu vegna meiðsla en hann kom aftur inn í byrjunarliðið fyrir leikinn gegn Kólumbíu.
„Dele spilaði sinn besta leik með enska landsliðinu undir minni stjórn gegn Túnis," sagði Southgate.
„ Hann er upp á sitt besta þegar hann hleypur upp með boltann frá miðjunni. Leikurinn gegn Kólumbíu var öðruvísi en hann stóð sig vel án boltans fyrir okkur."
Alli og félagar í enska landsliðinu mæta því sænska á morgun en leikurinn hefst klukkan 14.
Athugasemdir