fös 06. júlí 2018 12:30
Magnús Már Einarsson
Southgate: Fáum kannski ekki þetta tækifæri aftur
Mynd: Getty Images
Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands, segir að liðið verði að nýta tækifærið gegn Svíum í 8-liða úrslitum HM á morgun.

Englendingar eru komnir á flug og eru gríðarlega bjartsýnir á að liðið geti farið alla leið í úrslitaleikinn á HM í Rússlandi.

England mætir Svíþjóð á morgun og sigur þar þýðir leikur í undanúrslitum gegn Rússlandi eða Króatíu.

„Þetta er frábært tækifæri og þó að liðið okkar verði með betri einstaklinga eftir tvö ár þá gæti verið að við fáum þetta tækifæri aldrei aftur," sagði Southgate.

England komst síðast í 8-liða úrslit á HM árið 2006 en liðið fór síðast í undanúrslit á HM 1990.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner