Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   lau 06. júlí 2019 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ákváðu að halda æfingaleik ekki áfram eftir tvö rauð spjöld
Mynd: Getty Images
Charlton leikur á nýjan leik í Championship-deildinni á næsta tímabili eftir að hafa unnið umspilið í ensku C-deildinni á síðustu leiktíð.

Lee Bowyer hætti sem stjóri liðsins um stutta stund en ákvað svo að halda áfram.

Charlton spilaði í gær æfingaleik við Gaz Metan Medias, sem er í rúmensku úrvalsdeildinni.

Leikurinn var flautaður af eftir 49 mínútur eftir að rúmenska liðið ákvað að spila ekki áfram. Liðið missti tvo menn af velli eftir viðskipti sín við dómara leiksins eftir að hann dæmdi vítaspyrnu fyrir Charlton. Þetta varð til þess að leikmenn Gaz Metan gengu af velli og var leik ekki haldið áfram.

Nokkuð furðuleg byrjun á undirbúningstímabilinu hjá Charlton.



Athugasemdir
banner
banner
banner