Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 06. júlí 2019 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Buffon var með tilboð úr ensku úrvalsdeildinni
Buffon verður númer 77 hjá Juventus.
Buffon verður númer 77 hjá Juventus.
Mynd: Getty Images
Gianluigi Buffon er mættur aftur til Juventus eftir stutta dvöl hjá franska stórliðinu Paris Saint-Germain.

Hinn 41 árs gamli Buffon var í 17 ár hjá Juventus áður en hann gekk í raðir PSG síðasta sumar. Hann tók eitt ár í Frakklandi og er núna mættur aftur til Ítalíumeistaranna.

Umboðsmaður Buffon segir að hann hafi hafnað tilboðum úr ensku úrvalsdeildinni.

„Hann var með mörg tilboð, sérstaklega úr ensku úrvalsdeildinni og frá öðrum stórliðum," sagði Silvano Martina við MailOnline.

„Buffon hefur alltaf tekið ákvarðanir út frá hjartanu, ekki veskinu," sagði umboðsmaðurinn einnig.
Athugasemdir
banner
banner
banner