Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 06. júlí 2019 15:03
Ívan Guðjón Baldursson
Cancelo verður áfram hjá Juventus
Mynd: Getty Images
Ítalskir fjölmiðlar segja Joao Cancelo ekki vera á förum frá Juventus þrátt fyrir að vera eftirsóttur víða um Evrópu.

Maurizio Sarri vill halda Cancelo sem leikur ýmist sem hægri bakvörður eða á hægri kanti. Hann hefur meðal annars verið orðaður við Barcelona, FC Bayern, Manchester United og Manchester City í sumar.

Juve þarf þó að losa sig við nokkra leikmenn fyrir næsta tímabil til að geta haldið Cancelo. Kólumbíski kantmaðurinn Juan Cuadrado er einn þeirra en hann gæti farið til Shanghai Shenhua í Kína fyrir 15 milljónir evra.

Annar þeirra er Douglas Costa, sem mætti til æfinga tíu dögum fyrr til að sanna sig fyrir nýja þjálfaranum. Sarri er talinn hafa miklar mætur á Costa sem gæti leikið lykilhlutverk á næstu leiktíð.


Athugasemdir
banner
banner