Klukkan 19:00 í kvöld mætast Argentína og Síle í leiknum um þriðja sætið í Copa America, Suður-Ameríku bikanum.
Lionel Messi og félagar í Argentínu þurfa að sætta sig við enn ein vonbrigðin á stórmóti í fótbolta. Liðið tapaði í undanúrslitum gegn Brasilíu, 2-0.
Síle, sem unnið hefur tvær síðustu keppnir, tapaði óvænt gegn Perú í undanúrslitunum.
Leikurinn um þriðja sætið verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Leikur dagsins:
19:00 Argentína - Síle (Stöð 2 Sport)
Athugasemdir