Ian Jeffs var ráðinn sem tímabundinn stjóri ÍBV eftir misheppnaða dvöl Pedro Hipolito við stjórnvölinn.
Hann stýrði liðinu í 1-2 tapi gegn KR í nokkuð jöfnum leik en hann segist ekki vita hvað framtíðin ber í skauti sér.
„Ég átti að undirbúa liðið fyrir KR leikinn og svo kemur í ljós hvað gerist eftir helgi," sagði Jeffs.
„Það var ekki mikill munur á liðunum en þeir sýndu meiri gæði á síðasta þriðjungnum fannst mér. Ég ætla ekki að tjá mig um dómgæsluna, maður græðir ekkert á því."
Jeffs segir að Gilson Correia sé á leið heim eftir dvöl sína hjá félaginu og þá sagðist hann vera ánægður með vinnusemi Gary Martin í sínum fyrsta leik fyrir ÍBV.
Athugasemdir