Jóhannes Karl Guðjónsson var ánægður eftir 2-0 sigur ÍA gegn Fylki er liðin mættust á írskum dögum á Akranesi.
Skagamenn voru búnir að tapa fjórum og gera eitt jafntefli í síðustu fimm leikjum sínum í öllum keppnum. Síðasti leikur var markalaust jafntefli á útivelli gegn sóknarglöðu liði Víkings R. og telur Jói Kalli þann leik marka viðsnúning spilamennsku sinna manna.
„Ég var mjög ánægður með frammistöðuna í síðasta leik þar sem við náðum að finna grunninn okkar aftur," sagði Jói kátur.
„Við erum ekki að spá í einhverju skemmtanagildi þegar það kemur að okkar leik. Við ætlum bara að spila að okkar styrkleikum og vinna eins marga fótboltaleiki og við getum."
Jói Kalli var að lokum spurður út í framtíð sína, hvort hún lægi á Skaganum eða í þjálfun annars staðar.
„Ég er bara að velta fyrir mér næsta leik í Grindavík. Það er mikið verk framundan hér, við viljum koma Skaganum aftur í fremstu röð. Það verður gert skref fyrir skref og það er uppbygging sem ég vil taka þátt í."
Athugasemdir