Magni Grenivík fór í fýuferð í Laugardalinn í dag er liðið steinlá fyrir Þrótti 7 - 0.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 7 - 0 Magni
Páll Viðar Gíslason þjálfari Magna var skiljanlega ekki ánægður eftir leikinn.
„Það er ekki hægt að segja mikið eftir 7 - 0 skell, þetta versnaði frá því síðast og ég ber ábyrgð á þvi. Ég veit ekki hvað sleggjur ég get komið með hér eftir leik."
Það hefur verið sagan á þessu tímabili að Magni hefur ekki átt farsælt gengi á útivelli á þessu tímabili.
„Við erum búnir að prófa ýmsa hluti til að komast að því af hverju það er svona mikill munur á útivelli. Ég hef ekki fundið lausn á þessu ennþá og það verður að sjá hvað gerist."
Magni er enn á botni Inkasso deildarinnar og leita ennþá að fyrsta sigrinum á útivelli.
Athugasemdir