fim 06. september 2018 08:33
Magnús Már Einarsson
Fellaini og Benteke ekki með Belgum til Íslands
Icelandair
Fellaini kemur ekki til Íslands.
Fellaini kemur ekki til Íslands.
Mynd: Getty Images
Marouane Fellaini, miðjumaður Manchester United, og Christian Benteke, framherji Crystal Palace, hafa dregið sig úr belgíska landsliðshópnum vegna meiðsla.

Belgar mæta Skotum í vináttuleik annað kvöld áður en þeir koma til Íslands þar sem þeir spila sinn fyrsta leik í Þjóðadeildinni á Laugardalsvelli á þriðjudaginn.

Ekki hefur verið greint frá því hversu alvarleg meiðslin eru hjá Fellaini og Benteke eru.

Benteke var ekki í HM hópi Belga en hann var valinn í 27-manna hópinn fyrir leikina gegn Íslandi og Skotlandi.

Í gær neyddist Simon Mignolet, markvörður Liverpool, einnig til að draga sig úr hópnum vegna meiðsla en fyrir á meiðslalistanum er Kevin de Bruyne, miðjumaður Manchester City.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner