Kieran Trippier skoraði glæsilegt mark beint úr aukaspyrnu er England mætti Króatíu í undanúrslitum heimsmeistaramótsins í sumar.
Trippier kom Englandi yfir í leiknum en Króatar náðu að jafna og var blásið til framlengingar. Þar gerði Mario Mandzukic sigurmark Króata og sendi Englendinga heim.
Trippier gerði gott mót og segist horfa til baka á heimsmeistaramótið með söknuð í hjarta.
„Þetta var frábær stund fyrir mig, ég hef horft á þetta mark aftur og aftur. Það er samt enn sárt í dag að við höfum tapað leiknum," sagði Trippier.
„Ég ætla ekki að ljúga að ykkur, ég hef horft á markið um það bil hundrað sinnum."
Athugasemdir