Fotbolti.net
06.09.19 - 19:32
Elvar Geir Magnússon

Mikael: Var svekktur yfir því að vera á bekknum

Auglýsing
Mikael: Var svekktur yfir því að vera á bekknum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mikael Neville Anderson kom af bekknum í hálfleik þegar íslenska U21-landsliðið vann 3-0 sigur gegn Lúxemborg í fyrsta leik sínum í undankeppni EM.

Staðan var markalaus í hálfleik en Mikael var fljótur að hafa áhrif á leikinn og krækti í vítaspyrnu snemma í seinni hálfleiknum. Úr vítinu skoraði Ísland fyrsta markið.
„Ég var svekktur yfir því að vera á bekknum, þá þarf maður að sýna hvað maður getur þegar maður kemur inn og ég gerði það," sagði Mikael.

„Ég er búinn að krækja í þrjú víti á þessu tímabili svo það er ekki nýtt fyrir mig!"

Sjáðu viðtalið í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan en þar ræðir Mikael meðal annars um gott gengi sitt og Midtjylland í Danmörku.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.