Fram er á toppi Lengjudeildarinnar eftir 1-0 sigur á Leikni Reykjavík í toppslag. Leikurinn fór fram í Breiðholti.
Alexander Már Þorláksson kom Fram yfir á 18. mínútu leiksins með sínu 100. marki í deild og bikar á Íslandi. „Frábær samleikur milli Fred og Tryggva úti vinstra meginn sem endar með fyrirgjöf inn á teiginn frá Tryggva beint á kollinn á Alexander Má sem stangar boltann inn," skrifaði Anton Freyr Jónsson í textalýsingu þegar Alexander skoraði.
Framarar voru sterkir í rigningunni í Breiðholti og þeir lönduðu sigrinum. Leiknismenn voru reyndar brjálaðir alveg undir lok leiksins og vildu fá vítaspyrnu. Fram er á toppnum með 31 stig eftir 14 leiki spilaða, fimm stigum meira en Leiknir í öðru sæti. Fram hefur ekki leikið í efstu deild síðan 2014 en er núna að gera alvöru tilraun til að komast aftur upp.
Víkingur Ólafsvík vann Magna, 3-2, í fallbaráttuslag í hinum leiknum sem var að klárast. Lærisveinar Guðjóns Þórðarsonar gengu frá leiknum í fyrri hálfleik með þremur mörkum.
Helgi Snær Agnarsson minnkaði muninn fyrir Magna á 60. mínútu og Kristinn Þór Rósbergsson minnkaði muninn enn frekar á 89. mínútu, en það var of lítið og of seint. Ólsarar er í níunda sæti með 15 stig, fjórum stigum frá fallsvæðinu. Magni er á botninum með átta stig.
Leiknir R. 0 - 1 Fram
0-1 Alexander Már Þorláksson ('18 )
Lestu nánar um leikinn
Víkingur Ó. 3 - 2 Magni
1-0 Emmanuel Eli Keke ('6 )
2-0 Gonzalo Zamorano Leon ('37 )
3-0 Þorleifur Úlfarsson ('38 )
3-1 Helgi Snær Agnarsson ('60 )
3-2 Kristinn Þór Rósbergsson ('89 )
Lestu nánar um leikinn
Önnur úrslit:
Lengjudeildin: Þróttur og Afturelding með góða sigra
100 mörk í Deild og bikar, takk fyrir. pic.twitter.com/UMDVeT8Acx
— Thorlakur Arnason (@ThorlakurA) September 6, 2020
Athugasemdir