Fotbolti.net
06.10.17 - 21:07
Arnar Helgi Magnússon

Jói Berg: Þessi og Englandsleikurinn þeir bestu

Auglýsing
Marki Jóhanns fagnað í kvöld

Marki Jóhanns fagnað í kvöld

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Jóhann Berg Guðmundsson skoraði fyrsta mark Íslands á sigrinum glæsilega gegn Tyrklandi í kvöld. Mark Jóhanns kom eftir frábæran undirbúning Jóns Daða.
„Fór hann ekki inn? Það er það sem telur?\" svaraði Jóhann þegar hann var spurður hvort hann hafi hitt boltann vel.

Markið var það fyrsta hjá Jóhanni fyrir landsliðið síðan 2014.
„Auðvitað hefði maður viljað skora oftar en ef þau eru jafnmikilvæg og þetta mark þá bíður maður eftir næsta marki.

„Það gekk allt upp í þessum leik. Við vissum nákvæmlega hvað þeir ætluðu að gera. Planið gekk frábærlega upp, að koma á svona erfiðan útivöll og vinna 0-3. Það gerist ekki mikið betra.\"

Stemningin á vellinum var gríðarleg og lætin voru mikil.

„Við vissum við hverju mátti búast. Það er ekki langt síðan við spiluðum við þá svo að við vissum hvernig þetta yrði. Að fá þetta fyrsta mark inn frekar snemma gerði þetta allt miklu þægilegra þar sem þeir þurftu að koma framar og sækja á okkur.\"

Viðtalið við Jóa má sjá í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.