„Ég er svo ánægður," sagði Adama Traore, leikmaður Wolves, eftir 2-0 sigur á Englandsmeisturum Manchester City í dag.
Traore skoraði bæði mörk Úlfanna. Hann skoraði fyrst á 80. mínútu og bætti við öðru marki í uppbótartíma leiksins.
Traore skoraði bæði mörk Úlfanna. Hann skoraði fyrst á 80. mínútu og bætti við öðru marki í uppbótartíma leiksins.
„Við lögðum allir svo mikið á okkur allar 90 mínúturnar, ekki bara ég, heldur allt liðið. Það mikilvægasta er að við höfðum trú á verkefninu. Þetta lið gefst ekki upp."
„Ég er svo ánægður hönd liðsins og knattspyrnustjórans. Við náðum ekki í góð úrslit í upphafi tímabilsins, en ef þú heldur áfram að leggja þig fram þá koma úrslitin."
„Við verðum að taka þetta leik fyrir leik, í dag unnum við og núna verðum við að einbeita okkur að næsta leik."
Athugasemdir