Helgi Mikael Jónasson dæmdi í gær leik Airbus UK og Cardiff MU í úrvalsdeildinni í Wales.
Leikurinn endaði með 1-1 jafntefli, en gestirnir í Cardiff komust yfir í fyrri hálfleik úr vítaspyrnu. Airbus jafnaði í seinni hálfleiknum, nánar tiltekið á 80. mínútu, þegar leikmaður Cardiff gerði sjálfsmark.
Helgi Mikael dæmdi leikinn og honum til aðstoðar voru þeir Gylfi Már Sigurðsson og Andri Vigfússon.
Um er að ræða skiptiverkefni dómara við Wales. Í lok ágúst dæmdu dómarar frá Wales leik Grindavíkur og KA í Pepsi Max-deildinni.
Athugasemdir