Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   sun 06. október 2019 19:01
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Longstaff-bræður í viðtali - „Fékk strax fiðrildi í magann"
Mynd: Getty Images
Matthew og Sean Longstaff spiluðu saman á miðjunni hjá Newcastle er liðið vann Manchester United, 1-0 í dag.

Matty, sem var að spila sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni, skoraði sigurmarkið í seinni hálfleik.

Þeir ræddu saman við Sky Sports eftir leikinn gegn United.

„Í gærkvöldi fór ég í rúmið og dreymdi þetta, en ég bjóst aldrei við því að þetta myndi gerast," sagði Matty. „Ég er í skýjunum, orðlaus."

„Ég frétti það í gær að ég yrði í byrjunarliðinu. Ég fékk strax fiðrildi í magann."

Um markið: „Ég skaut boltanum og vonaði. Ég var ekki að reyna að skjóta honum á ákveðinn stað, en hann endaði í markinu. Þú getur ekki lýst þessari tilfinningu."

Sean er örlítið reyndari og var hann orðaður við Manchester United síðasta sumar. Hann var líka í skýjunum.

„Ég veit hversu mikið hann hefur lagt á sig. Hann hefur verið besti leikmaðurinn á æfingum. Ég gæti ekki verið stoltari af honum," sagði Sean um bróður sinn.

Hvernig var það að fá að spila með bróður sínum?

„Það var ótrúlegt að fá að spila með Sean. Við vorum vanir að sparka í hvorn annan í garðinum. Að spila saman fyrir uppeldisfélag okkar og vinna gegn Manchester United, það er súrrealískt," sagði Matty.
Athugasemdir
banner
banner