Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 06. október 2019 10:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Markvörður Lille til Íslands í stað Lloris
Lloris verður ekki með vegna meiðsla.
Lloris verður ekki með vegna meiðsla.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hugo Lloris þurfti að draga sig út úr franska landsliðshópnum í gær vegna meiðsla sem hann hlaut í viðureign Tottenham og Brighton.

Í stað Lloris kemur Mike Maignan 24 ára gamall markmaður Lille í Frakklandi inn í hópinn.

Lucas Hernandez leikmaður Bayern Munchen getur ekki heldur leikið með Frökkum á Íslandi og því duttu tveir menn út úr landsliðshópi þeirra í gær.

Ísland og Frakkland mætast á Laugardalsvelli í undankeppni EM á föstudaginn, flautað verður til leiks klukkan 18:45.


Athugasemdir
banner
banner
banner