Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 06. október 2019 07:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Son gæti farið til Napoli
Fer Son til Napoli?
Fer Son til Napoli?
Mynd: Getty Images
Suður-Kóreu búinn Heung-min Son sem leikur með Tottenham gæti spilað á Ítalíu í framtíðinni ef eitthvað er að marka orð umboðsmann hans Thies Bliemeister.

Hann nefnir Napoli sem líklegan áfangastað.

„Ég hef aldrei verið með leikmann sem er samningsbundinn Napoli, það væri hins vegar gaman af það yrði að veruleika, uppáhalds leikmaðurinn minn Diego Maradona spilaði þar."

„Son til Napoli, afhverju ætti það ekki að geta gerst? Maður á aldrei að segja aldrei í fótbolta. Son er hrifinn af Ítalíu, hann kann bæði að meta matinn og fólkið þar."

„Það er ekki auðvelt að fá hann frá Tottenham þar sem hann kostar mikið en hver veit hvað gerist í framtíðinni,"
sagði umboðsmaður Son, Thies Bliemeister að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner