Fotbolti.net
06.10.22 - 15:29
Elvar Geir Magnússon

Byrjunarlið Man Utd í Nikósíu: Casemiro og Ronaldo byrja

Casemiro er í byrjunarliði United.

Casemiro er í byrjunarliði United.

Canon

Mynd: Getty Images

Manchester United á leik í Kýpur klukkan 16:45 gegn Omonia frá Nikósíu í Evrópudeildinni. United er með þrjú stig eftir tvo leiki en Omonia er án stiga á botni riðilsins.

Varnarmennirnir Harry Maguire og Raphael Varane ferðuðust ekki í leikinn en þeir eru meiddir. Maguire var ekki með í 6-3 tapinu gegn Manchester City og Varane fór af velli vegna ökklameisla í þeim leik.
Casemiro og Cristiano Ronaldo byrja leikinn. Aaron Wan-Bissaka og Donny van de Beek eru áfram fjarri góðu gamni.

Fylgst er með gangi mála í úrslitaþjónustu á forsíðu.

Byrjunarlið Man Utd: De Gea; Dalot, Lindelöf, Martínez, Malacia; Casemiro, Eriksen; Antony, Bruno Fernandes, Sancho; Cristiano Ronaldo.

Sjá einnig:
Leikir dagsins í Evrópudeildinni og Sambandsdeildinni


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.