Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 06. október 2022 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Carragher væri til að sjá Messi vinna HM í Katar
Lionel Messi
Lionel Messi
Mynd: EPA
Jamie Carragher, sparkspekingur á CBS Golazo, væri til að sjá Lionel Messi vinna HM í Katar á þessu ári.

Englendingurinn er á þeirri skoðun að Messi sé besti leikmaður allra tíma og væri til í að allur heimurinn myndi fá staðfestingu á því með því að vinna HM í Katar.

Messi var nálægt því að vinna HM árið 2014. Argentína komst alla leið í úrslitaleikinn en mark frá Mario Götze í framlengingu eyðilagði draum Argentínu um að vinna mótið.

„Hann er besti leikmaður sem ég held að við öll höfum séð. Auðvitað erum við Pele, Johan Cruyff og Maradona, en Messi er besti leikmaður sem hefur spilað fótbolta."

„Það eru ekki allir í heiminum á sömu skoðun því allir telja maður verði næstum að vinna HM og það er ekkert sem ég myndi vilja meira en Messi og Argentína að vinna HM í Katar bara til að staðfesta það fyrir öllum að hann sé besti leikmaður sem hefur spilað leikinn,"
sagði Carragher.
Athugasemdir
banner