Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 06. nóvember 2018 23:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hetja Rauðu stjörnunnar: Mun eiga erfitt með svefn
Milan Pavkov.
Milan Pavkov.
Mynd: Getty Images
Milan Pavkov, leikmaður Rauðu stjörnunnar, fór á kostum í 2-0 sigri á Liverpool í kvöld.

Hann skoraði bæði mörk Rauðu stjörnunnar í leiknum.

Pavkov kostaði Rauðu stjörnuna 300 þúsund evrur í fyrra. Hann viðurkenndi það eftir leikinn að hann myndi eiga erfitt með svefn næstu nætur eftir þetta ótrúlega kvöld.

„Ég sagði það fyrir leikinn að ég vildi skora gegn Liverpool og það varð að veruleika. Ég skoraði tvö mörk," sagði Pavkov.

„Svefn? Ég mun ekki sofa mikið. Ég get stundum ekki sofið eftir deildarleiki, hvað þá eftir þennan leik. Ég mun ekki sofa mikið næstu tvær eða þrjá nætur. Ég verð samt að reyna að sofa eitthvað þar sem við eigum mikilvægan leik um helgina."

Smelltu hér til að sjá viðtalið við hann.
Athugasemdir
banner
banner
banner