Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 06. nóvember 2018 10:30
Magnús Már Einarsson
Leikmenn Belgíu kynna leikinn gegn Íslandi með Víkingaklappi
Icelandair
Belgía er í efsta sæti á styrkleikalista FIFA.
Belgía er í efsta sæti á styrkleikalista FIFA.
Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl
Belgía og Ísland mætast í Þjóðadeildinni á fimmtudaginn í næstu viku og miðasala á leikinn í Brussel er í fullum gangi.

Til að auglýsa leikinn fékk belgíska knattspyrnusambandið nokkra leikmenn Belgíu til að taka Víkingaklappið.

Thomas Meunier, Nacer Chadli, Dennis Praet og Matz Sels leikmenn Belgíu hentu allir í Víkingaklapp.

Leikurinn í næstu viku fer fram á King Baudouin leikvanginum sem tekur 50 þúsund manns en miðar á leikinn kosta frá 25 evrum og upp úr.

Hér má sjá myndbandið.
Athugasemdir
banner
banner