þri 06. nóvember 2018 22:49
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu sigurmark Tottenham - Fór af tveimur leikmönnum
Mynd: Getty Images
Tottenham vann gífurlega mikilvægan sigur gegn PSV Eindhoven í Meistaradeildinni í kvöld.

Tottenham lenti 1-0 eftir nokkrar sekúndur en náði að snúa leiknum þegar langt var liðið á síðari hálfleikinn. Harry Kane jafnaði á 78. mínútu og hann skoraði aftur á 89. mínútu.

Sigurmarkið var býsna skrautlegt en hann átti þá lausan skalla sem fór af tveimur leikmönnum PSV og í netið. Heppnisstimpill yfir markinu.

Til þess að bæta gráu ofan á svart fyrir markvörð PSV, Jeroen Zoet, þá klessti hann á stöngina eftir að boltinn fór inn.

Með sigrinum á Tottenham enn möguleika á því að komast áfram. PSV er úr leik.

Smelltu hér til að sjá sigurmark Tottenham.
Athugasemdir
banner
banner