Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 06. nóvember 2019 13:30
Magnús Már Einarsson
Maradona segist ekki vera að deyja
Mynd: EPA
„Ég er alls ekki að deyja. Ég sef vel þessa dagana því að ég er í vinnu," sagði argentínska goðsögnin Diego Maradona við fjölmiðla þegar hann svaraði ummælum sem dóttir hans Giannina lét falla í vikunni.

„Hann er ekki að deyja af því að líkamninn hans hefur ákveðið það, hann er að deyja að innan og hann áttar sig ekki á því," sagði hin þrítuga Giannina í vikunni.

Hinn 59 ára gamli Maradona er í dag þjálfari Gimnasia La Plata í Argentínu og hann telur að ummælin sem Giannina lét falla hafi mögulega verið mistúlkuð.

„Í augnablikinu er ég mjög heilbrigður," sagði Maradona sem hefur ekki alltaf verið með heilbrigðasta lífstílinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner