Fotbolti.net
06.11.22 - 20:15
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Emery: Leikmönnunum líður svo vel á heimavelli

Emery: Leikmönnunum líður svo vel á heimavelli
Canon

Mynd: Getty Images

Unai Emery var að vonum ánægður með sigur í fyrsta leik sínum sem stjóri Aston Villa gegn Manchester United í dag. Hann er mjög ánægður með leikmenn liðsins.

„Leikmennirnir sýndu að þeir eru hungraðir, þeir höfðu góðar tilfinningar fyrir leiknum á æfingu og á endanum gerðu þeir vel," sagði Emery.

United skildi eftir pláss sem leikmenn Aston Villa gátu nýtt sér.

„Þeir spiluðu vel i sínum stöðum, ég vil að þeim líði vel að spila á sínum styrkleikum. Uppstillingin skiptir mig ekki máli en við reyndum að nota plássið sem Man Utd skildi eftir fyrir okkur," sagði Emery.

„Leikmönnunum líður svo vel á heimavelli og ég vil byggja ofan á þessi úrslit."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.