Liverpool berst við spænsku risana um Wharton - Nkunku orðaður við Liverpool - Rodrygo í enska boltann?
   sun 06. nóvember 2022 22:08
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalía: Fjórði deildarsigur Juventus í röð
Filip Kostic
Filip Kostic
Mynd: EPA

Juventus 2 - 0 Inter
1-0 Adrien Rabiot ('52 )
2-0 Nicolo Fagioli ('84 )


Juventus fékk Inter í heimsókn í síðasta leik dagsins í ítölsku deildinni.

Inter var með tveggja stiga forystu á Juventus fyrir leikinn en með sigri myndi Juventus fara upp í 5. sæti.

Staðan var markalaus í hálfleik en Adrien Rabiot kom Juventus yfir eftir frábærlega útfærða skyndisókn. Filip Kostic brunaði upp vinstri kanntinn og lagði boltann inn á teiginn þar sem Rabiot var mættur og setti boltann í fjærhornið.

Stuttu síðar kom Danilo boltanum í netið en markið dæmt af þar sem hann fékk boltann í hendina. Lautaro Martinez gat svo jafnað metin en skot hans beint á Wojciech Szczesny í marki Juventus.

Þegar skammt var til leiksloka gulltryggði Nicolo Fagioli sigur Juventus eftir undirbúning frá Kostic.


Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Napoli 36 23 9 4 57 27 +30 78
2 Inter 36 23 8 5 75 33 +42 77
3 Atalanta 37 22 8 7 76 34 +42 74
4 Juventus 36 16 16 4 53 33 +20 64
5 Lazio 36 18 10 8 59 46 +13 64
6 Roma 36 18 9 9 51 34 +17 63
7 Bologna 36 16 14 6 54 41 +13 62
8 Milan 36 17 9 10 58 40 +18 60
9 Fiorentina 36 17 8 11 54 37 +17 59
10 Como 36 13 9 14 48 49 -1 48
11 Torino 36 10 14 12 39 42 -3 44
12 Udinese 36 12 8 16 39 51 -12 44
13 Genoa 37 9 13 15 34 48 -14 40
14 Cagliari 36 8 9 19 37 54 -17 33
15 Verona 36 9 6 21 31 64 -33 33
16 Parma 36 6 14 16 41 56 -15 32
17 Venezia 36 5 14 17 30 50 -20 29
18 Empoli 36 5 13 18 29 56 -27 28
19 Lecce 36 6 10 20 25 58 -33 28
20 Monza 36 3 9 24 27 64 -37 18
Athugasemdir
banner
banner
banner