Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 06. desember 2017 21:06
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Dembele var með á æfingu
Mynd: Getty Images
Ousmane Dembele hefur hafið æfingar að nýju með Barcelona.

Félagið birti myndband af honum á æfingu á Youtube-síðu sinni. Myndbandið er hér neðst í fréttinni.

Dembele hefur verið frá í þrjá mánuði eftir að hafa meiðst aftan í læri í byrjun tímabilsins, í september.

Dembele, sem er franskur landsliðsmaður, kom til Barcelona frá Borussia Dortmund í sumar fyrir metfé, eða 138 milljónir punda, en hann lék aðeins tvo deildarleiki áður en hann meiddist.

Hann er enn að jafna sig og óvíst er hvenær hann byrjar að spila aftur. Möguleiki er að hann nái El Clasico geg Real Madrid á Þorláksmessu, en það er alls ekki víst að það gangi eftir.


Athugasemdir
banner
banner
banner