Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mið 06. desember 2017 19:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Luke Shaw mun fá fleiri tækifæri
Mynd: Getty Images
Luke Shaw mun fá fleiri tækifæri með Manchester United eftir góða frammistöðu gegn CSKA Moskvu í Meistaradeildinni í gær. Þetta segir Jose Mourinho, stjóri Man Utd.

Shaw hefur verið mikið meiddur og í litlu formi, en í gær fékk hann tækifæri og nýtti það vel. Hann var einn besti maður vallarins í 3-1 sigri Manchester United á CSKA.

„Hann var mjög hættulegur, hann skapaði mikið og var mjög áræðinn," sagði Mourinho um frammistöðu Shaw.

„Hann fékk krampa á 80. mínútu sem er eðlilegt þar sem hann hefur verið lítið að spila. Hann átti þetta tækifæri skilið og hann mun fá fleiri þar sem þetta var jákvæð frammistaða frá honum."

Næsti leikur United er gegn nágrönnunum í Manchester City á sunnudag. Ashley Young mun að öllum líkindum byrja þann leik í vinstri bakverðinum og Shaw þarf því eitthvað að bíða.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner