Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 06. desember 2017 09:40
Magnús Már Einarsson
Man Utd skoðar Sergej-Milinkovic Savic
Powerade
Sergej-Milinkovic Savic.
Sergej-Milinkovic Savic.
Mynd: Getty Images
Slúðrið í dag kemur úr hinum ýmsu áttum. Kíkjum á það.



Pep Guardiola, stjóri Manchester City, ætlar að koma með nýtt risatilboð í Alexis Sanchez (28) leikmann Arsenal í janúar. (Independent)

Everton hefur spurst fyrir um Theo Walcott (28) leikmann Arsenal en hann hefur ekki byrjað einn einasta leik á tímabilinu. (Daily Mail)

Varnarmaðurinn Alex Sandro (26) vill fara frá Juventus en hann er á óskalista Chelsea. (Telegraph)

West Ham gæti reynt aftur að fá miðjumanninn William Carvalho frá Sporting Lisabon eftir að félögin náðu sáttum. (Sun)

Króatíski kantmaðurinn Ivan Perisic (28) segir að Luciano Spalletti, þjálfari Inter, hafi sannfært sig um að vera áfram hjá ítalska félaginu í stað þess að fara til Manchester United. (Manchester Evening News)

Manchester United sendi njósnara til að skoða Sergej-Milinkovic Savic, miðjumann Lazio, í 2-1 sigri á Sampdoria um síðustu helgi. (Sun)

Southampton, Newcastle og Crystal Palace hafa áhuga á Jack Hendry (22), varnarmanni Dundee. (Daily Mail)
Athugasemdir
banner
banner
banner