Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   mið 06. desember 2017 15:30
Magnús Már Einarsson
Nígería ætla að spila við England fyrir leikinn gegn Íslandi
John Obi Mikel fyrirliði Nígeríu.
John Obi Mikel fyrirliði Nígeríu.
Mynd: Getty Images
Stefnt er á að landslið Englands og Nígeríu mætist í vináttuleik í júní á næsta ári.

Mohammed Sanusi, framkvæmdastjóri nígeríska knattspyrnusambandsins, staðfesti þetta í dag.

Ekki er búið að ákveða nákvæman leikdag eða hvar leikurinn fer fram.

Nígería er með Íslandi í riðli í HM en liðin mætast í annarri umferð í riðlakeppninni þann 22. júní.

Nígería mætir Króatíu í fyrsta leik 16. júní en Englendingar spila við Túnis í fyrsta leik sínum tveimur dögum síðar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner