Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 06. desember 2017 20:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu markið: Frábær fótbolti hjá Liverpool
Mynd: Getty Images
Liverpool er komið 3-0 yfir gegn Spartak Moskvu í Meistaradeildinni þegar hálftími er liðinn af leiknum.

Eins og staðan er núna er Liverpool á leiðinni 16-liða úrslitin sem sigurvegari í sínum riðli.

Ekki er þó hægt að gleyma því að Liverpool missti niður þriggja marka forystu í síðasta leik sínum í Meistaradeildinni, gegn Sevilla. Nær Spartak Moskva að koma til baka?

Liverpool er að spila frábæran sóknarleik eins og liðið hefur gert allt tímabilið, hingað til.

Annað mark liðsins var einstaklega glæsilegt, það var algjört liðsmark. Mane sendi boltann á Salah sem setti hann á Firmino sem kom honum á Coutinho og úr varð mark.

Smelltu hér til að sjá markið





Athugasemdir
banner
banner
banner