mið 06. desember 2017 22:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þjálfari Spartak Moskvu: Okkur skortir gæði
Mynd: Getty Images
Massimo Carrera, þjálfari Spartak Moskvu, var ómyrkur í máli þegar hann spjallaði við fjölmiðlamenn eftir 7-0 tap gegn Liverpool í Meistaradeildinni í kvöld.

Carrera segist hafa aldrei tapað á þennan hátt á þjálfaraferli sínum, fyrir kvöldið í kvöld.

„Ég er auðvitað vonsvikinn, vegna þess að ég bjóst við öðruvísi leik frá okkur," sagði Carrera.

„Ég vil ekki segja að við hefðum átt að vinna en frammistaða okkar sýndi að okkur skortir gæði, við erum ekki nægilega góðir til að vera í Meistaradeildinni."

„Það er erfitt að taka þessum úrslit, ég hef aldrei fengið svona úrslit á þjálfaraferli mínum. Við verðum að læra af þessu."
Athugasemdir
banner
banner