Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 06. desember 2018 16:56
Elvar Geir Magnússon
Arsenal óttast að tímabilinu sé lokið hjá Holding
Rob Holding hefur spilað ágætlega á tímabilinu.
Rob Holding hefur spilað ágætlega á tímabilinu.
Mynd: Getty Images
Arsenal óttast að miðvörðurinn Rob Holding spili ekki meira á tímabilinu vegna alvarlegra hnémeiðsla sem hann hlaut í 2-2 jafnteflinu gegn Manchester United í gær.

Holding var borinn af velli á börum eftir að hafa verið að kljást við Marcus Rashford.

Arsenal á eftir að staðfesta alvarleika meiðsla Holding en óttast er að hann hafi skaddað liðbönd.

Laurent Koscielny að snúa aftur
Miðjumaðurinn Aaron Ramsey meiddist á ökkla í gær og er tæpur fyrir leikinn gegn Huddersfield á laugardag. Mesut Özil er að glíma við bakmeiðsli og missir líklega af leiknum.

Laurent Koscielny gæti komið inn í hópinn, ef ekki um helgina þá gegn Qarabag í Evrópudeildinni í næstu viku. Þessi 33 ára franski miðvörður sleit hásin gegn Atletico Madrid í maí og hefur verið að vinna í endurkomu sinni.

Hann spilaði með U21-liði Arsenal í vikunni og haltraði af velli en þau meiðsli voru smávægileg.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Liverpool 33 22 8 3 75 32 +43 74
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 33 12 7 14 46 53 -7 43
12 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
13 Bournemouth 33 11 9 13 48 60 -12 42
14 Crystal Palace 33 9 9 15 42 56 -14 36
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 33 10 8 15 34 48 -14 30
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 33 3 7 23 31 88 -57 16
Athugasemdir
banner
banner