Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 06. desember 2018 13:00
Magnús Már Einarsson
Harry Redknapp eftirherma neitaði að borða eistu Hemma
Harry Redknapp.
Harry Redknapp.
Mynd: Getty Images
Eftirherman Darren Farley birti í vikunni skemmtilega klippu á Twitter þar sem hann leikur knattspyrnustjórann Harry Redknapp.

Harry er þessa dagana að taka þátt í raunveruleikaþætti í Ástralíu. Í þættinum er frægt fólk úti í skógi þar sem það þarf að leysa þrautir.

Í klippunni er Harry látinn borða alls konar hluti.

Hann er síðan beðinn um að borða eistu íslenska varnarmannsins Hermann Hreiðarsson. Þá verður Harry reiður eins og sjá má hér að neðan!



Athugasemdir
banner
banner