Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 06. desember 2018 16:11
Magnús Már Einarsson
Joe Gomez frá í allt að sex vikur
Ekki meira með á árinu.
Ekki meira með á árinu.
Mynd: Getty Images
Joe Gomez, varnarmaður Liverpool, verður frá keppni í allt að sex vikur vegna meiðsla sem hann varð fyrir í 3-1 sigrinum á Burnley í gær.

Gomez var borinn af velli í fyrri hálfleik eftir tæklingu frá Ben Mee. Nú er ljóst að Gomez verður frá í allt að sex vikur.

Þetta eru slæmar fréttir fyrir Liverpool þar sem margir leikir eru framundan um hátíðarnar og Gomez hefur bæði leyst stöðu hægri bakvarðar og miðvarðar á tímabilinu.

Gomez missir af mikilvægum leikjum í ensku úrvalsdeildinni sem og leiknum gegn stóra gegn Napoli í Meistaradeildinni í næstu viku.
Athugasemdir
banner
banner
banner