fim 06. desember 2018 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn í dag - Eibar í hættu
Mynd: Getty Images
Síðari umferð 32-liða úrslita spænska Konungsbikarsins lýkur í kvöld og er enn spenna í þremur viðureignum.

Levante gerði óvænt jafntefli við Lugo á útivelli og þarf því sigur heima til að komast áfram. Eibar tapaði fyrir B-deildarliði Sporting Gijon og þarf helst að halda hreinu í dag.

Viðureign Real Betis og Racing Santander er þá enn opin eftir 1-0 sigur en Athletic Bilbao er í góðum málum eftir fjögurra marka sigur á útivelli.

Real Madrid tekur einnig á móti Melilla í dag og mun eflaust hvíla lykilmenn eftir góðan fjögurra marka sigur ytra.

Leikir dagsins:
11:00 Levante - Lugo (1-1)
15:15 Real Madrid - Melilla (4-0)
17:30 Eibar - Sporting Gijon (0-2)
17:30 Huesca - Athletic Bilbao (0-4)
19:45 Real Betis - Racing Santander (1-0)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner