Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mán 06. desember 2021 18:00
Elvar Geir Magnússon
Meiðslavesen í vörn Atletico fyrir mikilvægan leik
Stefan Savic verður frá næstu vikurnar.
Stefan Savic verður frá næstu vikurnar.
Mynd: Getty Images
Liverpool er búið að rúlla yfir þennan B-riðil Meistaradeildarinnar en hin þrjú liðin eiga öll möguleika á því að fylgja í útsláttarkeppnina.

Atletico Madrid leikur gegn Porto á útivelli í feikilega mikilvægum leik annað kvöld en meiðslavandræði herja á vörn Diego Simeone. Atletico verður að vinna og vonast til þess að AC Milan mistakist að vinna Liverpool til að komast í útsláttarkeppnina.

Lokaumferðin 7. desember:
20:00 Porto - Atletico Madrid
20:00 AC Milan - Liverpool

1. Liverpool 15 stig
2. Porto 5 stig
3. AC Milan 4 stig
4. Atletico Madrid 4 stig

Stefan Savic verður frá næstu vikurnar vegna vöðvameiðsla sem hann hlaut gegn Mallorca um helgina. Jose Maria Gimenez æfði heldur ekki í dag og búist er við því að hann geti ekki tekið þátt í leiknum á morgun.

Felipe tekur út leikbann og er Mario Hermoso því eini miðvörðurinn sem er heill hjá Simeone. Miðjumaðurinn Geoffrey Kondogbia þarf væntanlega að leysa af í vörninni.
Athugasemdir
banner