Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   þri 06. desember 2022 22:14
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Marokkóskur fréttamaður með tárin í augunum - „Vil bara þakka ykkur fyrir"
Mynd: Getty Images

Marokkó er komið í 8 liða úrslit á HM eftir sigur á Spánverjum eftir vítaspyrnukeppni í dag en liðið mætir Portúgal sem valtaði yfir Sviss.


Marokkó vann eftir vítaspyrnukeppni Yassine Bounou markvörður marokkóska liðsins sat fyrir svörum ásamt þjálfaranum Walid Regragui.

Þeir þurftu hins vegar engu að svara þegar marokkóskur fréttamaður fékk orðið. Hann var ekki með neina spurningu heldur vildi hann bara þakka fyrir sig.

„Ég ætla tala ensku svo allir sem eru hér skilji hvað ég er að segja. Það hafið skrifað söguna upp á nýtt, ég er ekki með neina spurningu en ég vil bara þakka ykkur fyrir því þetta hefur aldrei gerst í sögu marokkóska fótboltans. Þið eruð búnir að vinna traust allra Marokkóbúa aftur, 40 milljón manns eru ánægðir með það sem þið hafið gert, takk Walid þjálfari og takk Yassine Bounou, fyrir allt," sagði fréttamaðurinn með tárin í augunum.


Athugasemdir
banner
banner
banner