Fotbolti.net
07.01.21 - 23:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Huddersfield kaupir Aarons af Newcastle (Staðfest)

Aarons árið 2015.

Aarons árið 2015.

Canon

Mynd: Getty Images

Huddersfield festi í dag kaup á Rolando Aarons frá Newcastle. Kaupverðið er óuppgefið.

Aarons er 25 ára vængmaður sem fæddur er í Jamaíka. Aarons er uppalinn hjá Bristol City og Newcastle og lék alls 22 deildarleiki með Newcastle á árunum 2014-2021.
Aarons var á þeim árum lánaður til Slovan Liberec í Tékklandi, Motherwell í Skotlandi, Hellas Verona á Ítalíu og til Sheffield Wednesday og Wycombe Wanders á Englandi.

Aarons var ekki í úrvalsdeildarhópnum hjá Newcastle á þessari leiktíð en fær nú tækifæri í B-deildinni.

Huddersfield er í 13. sæti deildarinnar og stjóri liðsins er Spánverjinn Carlos Corberan.

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough18+1235
2Wolves18+1235
3West Brom18+1135
4Stoke City18+735
5Birmingham18+1332
6Southampton18+1831
7Swansea18+630
8QPR18+729
9Blackburn18+128
10West Ham18+1427
11Sheffield Utd18+627
12Norwich18+926
13Portsmouth18+226
14Wrexham18025
15Bolton18-921
16Charlton Athletic18-820
17Bristol City18-1119
18Millwall18-718
19Cardiff City18-818
20Watford18-1516
21Lincoln City18-1616
22Burnley18-1014
23Preston NE18-1313
24Derby County18-2111
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.