Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fös 07. febrúar 2020 12:30
Magnús Már Einarsson
Aguero og Klopp bestir í janúar - Setja báðir met
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp.
Jurgen Klopp.
Mynd: Getty Images
Sergio Aguero hefur verið valinn leikmaður janúar mánaðar í ensku úrvalsdeildinni.

Argentínumaðurinn skoraði sex mörk og lagði upp eitt í þremur leikjum Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í janúar.

Aguero hefur nú verið valinn leikmaður mánaðarins í sjö skipti sem er met. Steven Gerrard og Harry Kane koma næstir með sex verðlaun.

Aguero hafði betur gegn Alisson (Liverpool), Jordan Henderson (Liverpool), Abdoulaye Doucoure (Watford), Jack Grealish (Aston Villa), Ayoze Perez (Leicester) og Jack Stephens (Southampton) en þeir voru einnig tilnefndir.

Klopp besti stjórinn
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, hefur einnig sett nýt met í ensku úrvalsdeildinni eftir að hann var útnefndur stjóri mánaðarins.

Hann hefur unnið þennan titil fyrir ágúst, september, nóvember, desember og janúar. Eini mánuðurinn þar sem hann tók ekki titilinn var í október þegar Frank Lampard, stjóri Chelsea, hlaut heiðurinn.

Klopp hefur nú skákað Pep Guardiola sem átti metið yfir að vera oftast valinn stjóri mánaðarins á einu tímabili.

Liverpool er með 22 stiga forystu í ensku úrvalsdeildinni.


Athugasemdir
banner
banner
banner